Bjartur, Sunna, Dagn og Sindri

30.3.09

Vogin

23. september - 23. október

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: "Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.

Þetta á svo vel við að það er eiginlega ekki fyndið!! Og við eigum tvær svona! Gaman gaman.
Þetta með einangrunina þurfum við ekki að hafa áhyggjur af... alltaf stuð á Hjallabrautinni... og viljastyrkurinn og ákveðnin er svo sem alveg nógur hjá Sunnu..... ennþá. Hún er nú bara 2 ára.
Einhvers staðar á ég líka til um Tvíburamerkið. Finn það ekki svona í fljótu.
Gaman að þessu

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahahah Sjöfn er líka vog :):) greinilega eitthvað sem fylgir þessu merki :)

Nafnlaus sagði...

þetta var s.s ég sem var að comenta þarna áðan.
kveðja
Laufey

harpa sagði...

tvíburar eru hálfruglaðir sveimhugar sem eru með voða mörg verkefni í kollinum í einu. Ég bý jú með einum svona.

Eyrún sagði...

Tvíburar er náttlega bara snillingar í alla staði;) Skemmtilegir, yndislegir, duglegir, bara nefndu það;) Enda finnst varla meira tvíburaheimili en mitt... við erum öll tvíburar og þar af tveir tvíburar sem actually eru líka tvíburar;) Svo las ég e-s staðar að tveir tvíburar ættu varla að geta búið saman...