Bjartur, Sunna, Dagn og Sindri

29.12.10

lítill harðstjóri

Dagný las yfir mömmu sinni:,,Þú mátt ekki segja nei. Það má ekki segja nei við mömmu sína! Það má ekki segja nei..." Þetta endurtók hún í sífellu. Mamman þagði bara og barðist við að halda niðrí sér hlátrinum. Þegar sú stutta var búin með reiðilesturinn sagði mamman við Helgömmu:,,Það er bara verið að taka mann á teppið."
Þá segir Dagný:,,Nei! ÉG tek teppið!" og tók teppi sem var í sófanum og henti því í gólfið...
Maður er ákveðin ung dama ;O)
(des 2010)

1 ummæli:

Logi Helgu sagði...

Hún er svo mikið bíó...ég held að við verðum að gera teiknamyndaseríu af henni...ein þriggjaramma í hverri viku, svona eins og af Gretti =)