Pabbi og Bjartur voru að spekingast inní eldhúsi eitt kvöldið.
Pabbi:,,Bjartur, hvað verður Sunna gömul þegar Dagný verður 5 ára?"
Bjartur hugsar sig um.....
Pabbi:,,Manstu, Sunna er tveimur árum eldri en Dagný."
Bjartur:,,já....7ára?"
Pabbi:,,Já. En hvað verður þú þá gamall?"
B:,,9 ára."
Hugsar sig svo um stutta stund....
,,Þá verð ég búin að eiga hamstur í eitt ár."
Hann ætlar ekki að sleppa þessu drengurinn!
(Bjartur 5 ára, sept 2009)
27.9.09
Heilabrot
Að ferðast í sápukúlu??
Mamman ákvað að fara í göngutúr til Möllu með krakkana svo pabbinn gæti sofið eftir spilerí um nóttina. Allir voru að gera sig reddý, klæða sig og svona... og finna sápukúlur sem Sunna vildi endilega fara með.
Bjartur ætlaði að hjóla, Dagný í kerrunni en hvað með Sunnu?
Mamma:,,Sunna ætlar þú að hjóla?"
Sunna:,,Nei..."
M:,,Ætlarðu að labba?"
S:,,Nei..."
M:,,Nú, hvað þá?"
S:,,Ég ætla að sápukúlast..."
(Sunna alveg að verða 3 ára sept. 20009)
22.9.09
Ljósir lokkar og bleikir lokkar
Það hefur nokkuð lengi verið á dagskrá að setja göt í eyrun hennar Sunnu... Gerðum eina tilraun í skartgripabúð hérna í Hafnarfirði þar sem okkur var neitað um þjónustu. Í dag fórum við svo inní Smáralind í Mebu og fengum þessa fínu, bleiku lokka! Sunna var sjálf harðákveðin í að vilja fá göt (reyndar segir hún að þetta séu ekki göt í eyrunum, heldur eyrnalokkar í eyrunum!) og var alveg sama hvað mamman sagði. Reyndi að útskýra að þetta væri svoldið vont en þegar mín var búin að velja þessa bleiku (mánaðarsteinn október) var ekki aftur snúið. Eyrnasneplarnir voru sótthreinsaðir vel, tússað á þá og svo var skotið! Bæði eyrun í einu. Það komu nokkur tár sem hurfu um leið og hún skoðaði sig í speglinum. Það sem henni finnst hún flott núna!
Um leið og við komum heim kom Bjartur hlaupandi fram á gang og spurði:,,Hvað kom mikið blóð?!" hehehehe þessir gaurar!
14.9.09
Æfingar
Þá er Sunnasól búin að fara í fyrsta ballerínutímann. Þvílíku dúllurnar sko! Hún var auðvitað langflottust og með þeim efnilegri í hópnum. Þarna á mín sko heima. Nú þurfum við bara að redda almennilegu æfingadressi á skvísuna.... Mamman er að vinna í þeim málum ásamt Helgömmu.
Bjartur er líka búinn að fara nokkur skipti í Boltaskóla Haukanna og gengur þessvegna ekki á jörðinni lengur. Honum finnst hann svo flottur að vera orðinn svona æfingagæi að fæturnir snerta ekki jörðina. Hann er líka ótrúlega flottur og gerir allt eins og þjálfarinn segir, mjög einbeittur á svip.
Dagný er að æfa sig í frekjunni ;o) En mamman er með hana í hlýðnibúðum. Hún er orðin uppátækjasöm stelpan... Fer í moldina í blómapottinum inní stofu, tæmir klósettrúlluna inná baði og fiktar í tækjunum inní holi. Hún er svo fyndin með gribbustælana sína... þykist ráða öllu og er mesta krútt fyrir vikið...
Þannig að eins og sést er nóg að gera hjá öllum. Pabbinn búinn að vera sveittur líka að setja inn myndir- komin nokkur ný albúm.
Njótið
30.8.09
Spilagaldur, Sápukúlur og Stökkull
Þá erum við aftur komin heim frá Seyðis. Þessi ferð var alveg æææðisleg og spilaði mikið inní að við fórum fljúgandi ;o) En á móti kom að við vorum ekki með bílinn okkar og þess vegna héngum við sem mest bara á Múlaveginum, sem var sko ekki slæmt, og svo þurfti tvo bíla til að sækja okkur. En það var nú lítið mál! Helgamma, Bragi og Rakel biðu eftir okkur þegar við lentum og svo var raðað í bíla og beint í heimsókn til Dags og Ingu að skoða kanínurnar. Svo eftir mjöööög góða Bónusferð var brunað yfir á Seyðis og hreyfðum við okkur varla þaðan.
Mamman og pabbinn fengu að fara í bíó meðan Helgamma passaði. Já, það er bíó á Seyðis, látið ekki svona. Þetta er ekki algjört krummaskuð ;o) Og svo var glæsilegt matarboð hjá Ástu og Símoni og strákunum, kíkt á róló, berjamó og í sund, farið í menningarferð í Skaftfell og í Geirahús .... Alltaf nóg að gera á Seyðisfirði.
Ein af ástæðunum fyrir þessari ferð var að Jóhann og co komu til landsins og þvílíkt stuð. Held að það hafi aldrei verið farið í jafn æsilegan eltingarleik eða borðað jafn mikið af amerískum pönnsum áður ;o) Tala nú ekki um sápukúlublástur!! Sunna setti persónulegt met og fór létt með að smita frá sér áhuganum. Bjartur lærði spilagaldur af Sól frænku og gerði okkur ekkert gráhærð með honum, nei, nei...hehehe. Dagný átti sér eitt markmið daglega. Það var að hrella köttinn. Aumingja Stökkull mátti þola ýmislegt frá henni, m.a. veiðháratog og eyrnaklíp en hann var orðinn ansi góður í að forðast hana í lokin ;o)
Veðrið var nú ekki sem best (eins og svo oft áður þegar við erum þarna) og haustið komið fyrir víst þarna fyrir austan.
En, eins og Helgamma segir, þá erum við ekki að heimsækja veðrið ;o)
17.8.09
Bjartur að horfa á So you think you can dance.
Pælir mikið í því af hverju dómararnir og keppendur eru ekki alltaf í sömu fötunum...
Bjartur: Af hverju eru þau alltaf í nýjum fötum?
Mamma: Af því þau skipta alltaf um föt. Þetta eru eins og búningar.
B: Já en dómararnir eru líka oft í nýjum fötum.
M: Já. Þetta er ekki allt sama kvöldið. Þau skipta um föt af því að það er kominn annar dagur.
B: En Dóra (landkönnuður) er ALLTAF í sömu fötunum. Samt kemur nýr dagur hjá henni....
Ekki alveg að kveikja á því að Dóra er teiknimynd. En sýnir tilbreytingarleysið í Dóru sem er sko ekki í uppáhaldi hjá foreldrunum!
(ágúst 2009)
15.8.09
* Nýtt look *
Loksins tóku mamman og pabbinn sig til og gerðu síðuna svoldið sæta og huggulega. Þetta er svaka munur! Finnst ykkur ekki? ;o)
